Á netinu er að finna mörg sænskunámskeið, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Á undanförnum árum hefur átt sér stað mikil aukning af íslenskum grunnskólabörnum sem hafa áhuga á að læra sænsku. Við höfum einnig orðið vör við að íslensk ungmenni velji, í auknum mæli, sænska háskóla til að stunda nám við.
Nú er góður tími til að læra og/eða bæta við sænskukunnáttu sína.
Sænska nýtist vel í Noregi, Danmörku og stórum hluta Finnlands.
Það er mikill samgangur milli Svíþjóðar og Íslands í menningu, tónlist, leikhúsi, bókmenntum- og íþróttum og þá er færni í sænsku mikill kostur.